150. löggjafarþing — 5. fundur,  16. sept. 2019.

úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

45. mál
[17:38]
Horfa

Flm. (Þórhildur Sunna Ævarsdóttir) (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að það sé bara ágætt að ég hafi ekki getað svarað fyrri spurningu hv. þm. Guðmundar Inga Kristjánssonar fyrr en nú vegna þess að síðari spurning hv. þingmanns veitir svar við þessu líka — þ.e. síðara áhyggjuefnið. Ég ætla alls ekkert að úttala mig um fjármögnun náttúruverndarsamtaka eða hvernig þau ætli að fjármagna sig. Þau hljóta að forgangsraða eins og allir aðrir þegar kemur að nýtingu fjármuna. Ég held ekki að það verði neitt flóð dómsmála á vegum náttúruverndarsamtaka þótt við gefum þeim aðgengi að dómskerfinu fyrir hönd náttúrunnar, alls ekki. Ég held að náttúruverndarsamtök hljóti að forgangsraða mikilvægustu málum vegna þess að það kostar peninga að reka mál fyrir dómstólum. Það er hins vegar svo að nú hafa náttúruverndarsamtök aðgang að úrskurðarnefnd umhverfismála en ef þau eru ósátt við úrskurðinn geta þau ekki leitað til dómstóla eins og ef um persónu væri að ræða sem hefði hina lögvörðu hagsmuni. En við höfum samþykkt Árósasamninginn sem segir okkur að allir hafi lögvarða hagsmuni af því að vernda náttúruna. Það er verið er að fullnusta eða fullnægja þeim skuldbindingum sem við höfum tekið okkur á hendur gagnvart Árósasamningnum með því að víkka út eða auka getu þeirra til að standa vörð um náttúruna og til að tala fyrir hennar hönd — og ekki veitir af.