breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2025.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Eitt af því sem var breytt aðeins fyrir nokkrum árum síðan var að það renna allar tekjur beint inn í ríkissjóð og svo er peningum skammtað þaðan inn í ákveðna sjóði. Gott dæmi um þetta er einmitt sjóður sem hv. þingmaður nefndi hér áðan, ofanflóðasjóður. Ofanflóðasjóði er ætlað að tryggja og búa til varnir við snjóflóðum og ofanflóðum víðs vegar um landið og við höfum séð það á þessu ári að það er nú mikil þörf á því að klára það verkefni. En hvað er að gerast? Jú, það er endalaust verið að taka peninga út úr sjóðnum. Það er verið að taka peninga út úr því sem sjóðurinn hefur þegar og það er ekki verið að setja það inn í sjóðinn sem lagt er á okkur landsmenn til að það fari í þetta. Ég man eftir því sem ungur drengur að það var sett inn hækkun á, ég man nú ekki hvort það var virðisaukaskattur eða forveri hans, söluskatturinn, það var sett inn örlítil hækkun á því sem kallað var Þjóðarbókhlöðunefskatturinn, sem var ætlaður til þess að við gætum byggt hér upp fallega og góða Þjóðarbókhlöðu. Sá peningur fór reyndar mjög hægt og rólega í þá Þjóðarbókhlöðu. Það tók alveg áratug eða eitthvað að byggja hana af því að peningarnir fóru aldrei þangað sem var verið að segja okkur skattborgurunum að þeir væru að fara. Hvað finnst hv. þingmanni um að það sé í rauninni verið að ljúga að okkur hvað sé verið að rukka okkur um? Vegna þess að síðan fara peningarnir ekkert í þetta, hvort sem það er Framkvæmdasjóður aldraðra, til að byggja upp hjúkrunarheimili, eða ofanflóðasjóður eða allir aðrir sjóðir.