breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra svarar hér eins og hann hafi ekki sjálfur staðið að þessu frumvarpi og nefnir það að hann telji að einhver tiltekin ástæða sé fyrir því að gjöldin séu ekki, eins og gjöld eiga að vera, í samræmi við kostnað við skrásetningu. Gott og vel, það liggur þá fyrir að menn vilja taka þessa hækkun í einhverjum skrefum. Mig langar þá að bæta við varðandi gjaldtökuna í Háskóla Íslands, af hverju þess sjáist ekki stað hér í þessu frumvarpi veruleg hækkun á gjaldi til að annast umsóknir um dvöl frá einstaklingum utan EES-svæðisins. Það hefur verið kynnt að þetta hafi verið í vinnu í ráðuneytinu á síðasta kjörtímabili og háskólinn metur að sé mjög mikilvægt að fá fram hærra gjald til þess að meðhöndla umsóknir frá námsmönnum að utan eða þeim sem segjast vera að sækja um nám. Þetta er nauðsynlegt til að stemma stigu við misnotkun á skólakerfinu þegar kemur að öllum þessum útlendingamálum. Hvað líður þeirri vinnu? Af hverju er ekki gert ráð fyrir hækkun á þessu gjaldi í þessu frumvarpi?