157. löggjafarþing — 5. fundur,  15. sept. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[19:09]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisgóða ræðu. Ég held að ég geti sagt með sanni að ég sé alla jafna frekar á bremsunni hvað opinber útgjöld varðar og skattheimtu og skatta og gjöld. En þetta er einn af þeim gjaldaliðum sem ég hef haft mikla samúð með, bara í ljósi þess til hvers hann er nýttur og í ljósi mikilvægis starfa þjóðkirkjunnar í sögulegu samhengi. Í ljósi þess að þetta er ekki fyrsta ræða hv. þingmanns um lækkun sóknargjalda í framlögðum bandormi hvers árs — það virðist vera orðinn einhver plagsiður að leggja þetta einhvern veginn til til að halda ákveðnum þingmönnum uppteknum við að vinda ofan af þessari tilteknu tillögu — langar mig að biðja hann um að setja þetta kannski aðeins í samhengi. Við horfum t.d. á nefskattinn sem Ríkisútvarpið nýtur góðs af, vísitölubættur og rúmlega það ár eftir ár með viðbótarframlögum á grundvelli fjölgunar fyrirtækja í samfélaginu. Þar er að einhverju marki sambærilegt tekjustreymi sem endar uppi í Efstaleiti og það er rúmlega verðbætt plús atvinnulífið og vöxtur í því. Þykir hv. þingmanni að leggja megi þetta að einhverju marki að jöfnu, þessa nálgun hvað tekjuöflun varðar, annars vegar hvað nefskatt útvarpsgjaldsins varðar og hins vegar sóknargjöldin? Síðan langar mig að biðja hv. þingmann að teikna upp hversu sanngjarnt honum þykir að annað apparatið njóti rúmlega verðtryggðra tekna (Forseti hringir.) og hitt þurfi að fara í gegnum þennan árlega slag sem við stöndum í hér.