fæðingar- og foreldraorlof.
Virðulegi forseti. Það er gott að blanda sér í þessar umræður um þjóðþrifamál eins og barneignir. Auðvitað er þetta þarft frumvarp sem hér er á ferðinni og má kannski segja að dæmi úr mínu kjördæmi, þ.e. Suðurkjördæmi, sé einmitt erkidæmi um þennan vanda sem eru auðvitað Vestmannaeyjar. Þar er vel búið sjúkrahús þar sem fæðingarhjálp hefur í raun lagst af smám saman og er ekki fyrir hendi lengur. Það er ljósmóðir í Eyjum en í raun og veru ekki eðlileg fæðingarhjálp á sjúkrahúsinu þar. Þar er auðvitað mál sem þyrfti að endurskoða. Ég hef svo sem flutt um það ræður í þessum stól áður. Þannig háttar að það eru rúmlega 50 fæðingar að meðaltali í Vestmannaeyjum, tvær, þrjár, fjórar eru í Eyjum, restin öll uppi á landi. Og reyndar svo margt annað þessu tengt eins og ómskoðun og annað slíkt, ómskoðun er ekki framkvæmd á sjúkrahúsinu. Það verður náttúrlega aukakostnaður sem felst í því að fara oftar en einu sinni í land í tengslum við barneignir.
Þessi hái kostnaður sem verður til, það þarf ekki fjölyrða um hann. Hann snýr bæði að aðstandendum, fólkinu sjálfu sem á í hlut, en það verður líka margra tuga milljóna króna kostnaður til vegna sjúkraflugs úr Eyjum, stundum með venjulegri sjúkraflugvél, stundum með þyrlum Landhelgisgæslunnar ef illa stendur á. Við höfum dæmi um að fyrirtæki hafi orðið að loka fyrir starfsemi vegna þess að fólkið verður að dvelja í landi í svo og svo langan tíma. Hvernig sem á þetta er litið eru Vestmannaeyjar gott dæmi um ástand sem á ekki að vera til í raun og veru í okkar ágæta landi.
Þetta er því fullkomlega stuðningsvert frumvarp, tiltekið skref af mörgum sem þarf að taka til að bæta fæðingarhjálp í landinu. Ég tek ekki afstöðu til þess hvort þetta eigi að vera þrjár vikur, fjórar eða fimm fyrir áætlaðan fæðingardag. Það er eitthvað sem sérfræðingarnir þurfa að véla um. En ég vona að hv. velferðarnefnd taki frumvarpið til vandlegrar yfirferðar og lýsi af minni hálfu stuðningi við það.