ummæli vararíkissaksóknara og afskipti ráðherra af brottvísun hælisleitanda.
Herra forseti. Eftir sex vikna vangaveltur ákvað hæstv. dómsmálaráðherra loks að víkja ekki vararíkissaksóknara úr starfi en lét þó fylgja með athugasemdir um að ummæli hans hefðu verið óásættanleg og ekki í samræmi við embætti hans og auk þess varpað rýrð á ákæruvaldið í landinu. Það vantaði hins vegar hjá hæstv. ráðherra að útskýra hvaða ummæli þetta væru. Við hljótum að þurfa að vita það, fyrst ráðherra telur ástæðu til að taka svo sterkt til orða, hvaða ummæli voru óásættanleg að mati hæstv. ráðherra.
Hæstv. ráðherra hefur ítrekað sagt að hann skipti sér ekki af einstaka málum. Það virtist taka sinn tíma í þessu máli sem var beinlínis beint til hæstv. ráðherra. Nú er komið upp annað mál sem ráðherrann hefur skipt sér af mjög afdráttarlaust, óvænt og skyndilega og varðar brottvísun eftir að mál hafði farið í gegnum allt kerfið. Ég spyr hvers vegna hæstv. ráðherra hafi gripið inn í það mál. Treystir hæstv. ráðherra ekki heilbrigðiskerfinu á Spáni, treystir hæstv. ráðherra ekki stjórnkerfinu á Íslandi eða var þetta gert eingöngu að kröfu ráðherra Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs? Hvað hefði gerst ef ekki hefði verið orðið við þeirri kröfu? Fóru ráðherrar Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs fram á að hæstv. ráðherra skipti um skoðun í þessu máli, ella myndu þeir slíta stjórnarsamstarfinu? Telur hæstv. ráðherra sig hafa lagaheimild til að grípa inn í mál með þessum hætti?