155. löggjafarþing — 5. fundur,  16. sept. 2024.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2025.

2. mál
[16:48]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningarnar hérna. Ég vil kannski byrja á að leiðrétta með að ég hef hvergi sagt að við það að ganga í Evrópusambandið lagist allt. Ég veit ekki nema bara löndin í Evrópusambandinu séu að glíma við ýmislegt en ég er alveg viss um að með því að vera hluti af stærri heild þar sem ríkir miklu meiri stöðugleiki þá myndum við fara að upplifa annars konar stöðugleika. Við myndum kannski fara að fá smjörþefinn af þeim stöðugleika sem er til staðar í Evrópu og þar myndi ég vilja vera.

Ég nefndi það hér í pontu fyrir ekki löngu síðan að fjármagnskostnaður íslenska ríkisins hefur aukist um 58% á tveimur árum og það munar um minna. Lögin um opinber fjármál hafa hjálpað okkur verulega en við erum samt alltaf að glíma við sveiflur upp og niður og þó að það sé hægt að segja að hér sé allt að koma þá er það bara þannig að það er bara tímabundið. Við munum, á meðan við sitjum á þessum ónýta stólpa sem við hvílum á, sem er íslenska krónan, alltaf fá sveiflur upp og niður. Ég man t.d. alveg eftir því í aðdraganda hrunsins hvað það var nú gott að vera Íslendingur og geta farið út og leikið sér eins og greifi en svo fór ég út eftir að hrunið átti sér stað og þá var ég bara fátæklingur og ég vil ekki upplifa það aftur.