breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég vil nú fá að segja að það er ansi margt sem rýrnar ef þessi skilaboð ríkisstjórnarinnar til alls markaðarins eru þannig að verðbólguvæntingar minnki ekki o.s.frv. En við skulum samt vona að að einhverjir þarna úti heyri þessi orð öðruvísi en ég. En, eins og ég segi, þetta veldur ákveðnum vonbrigðum og hér getur verið mikið í húfi.
Ég vil í minni seinni spurningu fá að spyrja ráðherra kannski örlítið tengt fjárlögum sem var mælt fyrir í síðustu viku, spyrja út í hina svokölluðu stöðugleikareglu — og ég vil leyfa mér að segja svokölluðu stöðugleikareglu því að hún hvetur ekki endilega til aðhalds eða neins slíks. Það hefur komið í ljós með því hvernig fjárlögunum er stillt upp að þá er svigrúmið til að fara ekki umfram í þeim tölum öllum, svigrúmið í ríkisfjármálum er 400–500 millj. kr. sem er í þessu pólitíska samhengi eitthvað klikk. Ég verð þá að leyfa mér að spyrja: Lítur ráðherra svo á að það sé möguleiki að bandormurinn sem hér er ræddur eigi einhvern veginn að stíga inn í með auknum sköttum t.d. til þess að stöðugleikinn verði betri, en þá með auknum útgjöldum að sjálfsögðu?