157. löggjafarþing — 5. fundur,  15. sept. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[16:07]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mér fannst hæstv. fjármálaráðherra ansi brattur að þakka sér 90 milljarða tekjuaukningu á árinu 2025 með því sérstaklega að nefna sölu á Íslandsbanka og frágang ÍL-sjóðs sem eru bæði frábær mál en eftir því sem ég best veit voru bæði ráðgerð í fjárlögunum þannig að mér þótti það býsna bratt af hæstv. ráðherra.

En það sem mig langar að spyrja hæstv. ráðherra út í er krónutöluhækkunin sem á að skila 4,3 milljörðum, hækka vísitöluna um 0,12%, hvort ríkisstjórnin hafi enga trú á því að það sé hægt að lækka verðbólgu. Ég heyrði bæði hjá hæstv. fjármálaráðherra og í samtölum við hæstv. forsætisráðherra hér fyrir helgi að það mætti ekki rýra skattstofna ef þetta yrði viðvarandi. Ég er sammála — ef þetta er viðvarandi. En ef það er liður í því að ná niður verðbólgu á einu ári að senda út þau skilaboð að ríkisstjórnin trúi því að það sé hægt að ná verðbólgu hér í markmið og hallalausum fjárlögum þá hefðu menn ekki hækkað um krónutöluhækkun upp á 4,3 milljarða. Þá hefðu menn látið duga 2,5 eða 2,7.