157. löggjafarþing — 5. fundur,  15. sept. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[16:09]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ekkert vildi ég síður en að styggja hv. þm. Sigurð Inga Jóhannsson eða láta undir höfuð leggjast að þakka honum fyrir hans góðu störf í þágu íslensku þjóðarinnar. Hafi hann skilið mig á þann hátt þá vil ég biðjast afsökunar á því.

Varðandi krónutöluhækkanirnar og áhrif á vísitölu neysluverðs þá verður að gera greinarmun á áhrifum gjalda á vísitölu neysluverðs og áhrifum gjalda á verðbólgu af því að það er sitthvor hluturinn, annað er bara reikniregla. Ég held að menn ættu að fara mjög varlega í að taka þann pól í hæðina og ég hygg að hv. þingmaður geti staðfest að viðvarandi vanáætlun á þörf fyrir breytingar á gjöldum sem eiga að standa straum af kostnaði bitnar annaðhvort á afkomu eininganna sem veita þjónustuna eða þjónustunni sjálfri og ef við ætlum ekki að taka ákvörðun um að fella þjónustuna niður, af hverju ættum við að rýra gjaldstofnana með þessum hætti?