breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegi forseti. Við hv. þingmaður erum ekki alveg sammála þegar kemur að þessu. Ég tel bara vera óeðlilegt að efstu tekjutíundirnar fái sérstaka skattaívilnun. Við erum ósammála um það, það er bara þannig. Ég velti því líka hér upp varðandi þessa skattaívilnun að einstæðingar og einstæðir foreldrar njóta hennar ekki. Það er það sem ég er að benda á og áhrifin eru bara eins og ég var að nefna. Það er þannig og það kemur fram í frumvarpinu að karlar njóta 80% af þessari skattaívilnun en konur 19%. Þetta eru bara ein af þeim rökum sem eru í málinu. Þingmaðurinn má vera mér ósammála um það en þetta er bara hluti af greinargerðinni. Hún getur þá bara tekið það upp við ráðuneytið af hverju þau setja þetta fram með þessum hætti. En þetta vakti athygli mína og ekki síður að þetta nýtist ekki þessum heimilum þar sem kannski fátækt er mikil og það er einmitt á heimilum þar sem eru einstæð foreldri. Þannig að þessi skattaívilnun sem við erum hér að afnema í efstu þrepunum, hún nýtist þeim ekki. En við erum að koma frá ólíkum stað, ég og hv. þingmaður hvað þetta varðar og við munum örugglega halda þessari umræðu áfram í hv. efnahags- og viðskiptanefnd.