158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

gildi umsóknar Íslands að ESB.

[13:36]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Það er nú svolítið merkilegt með eftirköst þessarar þjóðaratkvæðagreiðslu. Þeir sem vildu helst fá nei út úr henni, sem er afstaða sem ég virði, gerðu það m.a. á þeim forsendum að við gætum hætt að tala um þetta mál, að við myndum ekki fara áfram í Evrópuleiðangur. Það hefur verið skýrt af hálfu ríkisstjórnarinnar að við virðum niðurstöðuna. Það verður engum tíma þessarar ríkisstjórnar eytt þegar kemur að aðildarferli að Evrópusambandinu. Það verður ekki sóst eftir samningi, það verður ekki klárað. En við höfum líka sagt að eftir þessa atkvæðagreiðslu er staða Íslands gagnvart Evrópusambandinu óbreytt.

Það getur vel verið að hv. þingmaður vilji eyða hér tíma þingsins núna þrátt fyrir vilyrði nei-sinna um að hætta að eyða tíma þingsins og þjóðarinnar í þessu máli í að þræta um það hvort umsókn sé gild eða ekki en ég fullyrði það hér inni að ríkisstjórnin mun ekkert aðhafast meira í þessu máli. Annars vegar er fólk hér inni sem vill draga umsókn til baka, er að gera kröfu um það, enn aðrir eru ósammála því hvort hún sé gild eða ekki. Við erum ekki að tala meira um þetta ferli. Við aðhöfumst ekkert meira þegar kemur að Evrópusambandinu hvað þetta varðar. Það breytir því ekki að EES-samningurinn og okkar Evrópusamstarf er áfram virkt. Við þurfum áfram að sinna því. Við hljótum að átta okkur á því í síbreytilegum heimi að þessi mikilvægi markaður okkar er grundvöllur viðskipta hér á landi og skiptir máli að við virðum það. Þannig að við skulum halda okkur við lykilatriði máls. Þjóðin kaus að halda ekki áfram aðildarviðræðum. Staða Íslands gagnvart Evrópusambandinu er óbreytt eins og hún var í tíð síðustu ríkisstjórnar og ég hef ekki meira um það að segja.