157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

úrskurður forseta.

[13:11]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Ég vildi koma hér upp um fundarstjórn forseta og taka undir með hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur og þakka fyrir þennan úrskurð, mikilvægt að fá hann fram. Ég vildi einnig benda á það, virðulegur forseti, hvernig þetta hefur haft mikil áhrif á störf nefndarinnar í því máli sem við erum að fara að greiða atkvæði um á eftir, bandorminum, 2. dagskrármál. Við hófum umfjöllun miðað við 1. umræðu og fengum umsagnir eftir 1. umræðu, en daginn sem minnisblaðið frá fjármálaráðuneytinu birtist, 17. október, fóru að sjálfsögðu allar áhyggjur og öll athyglin í það að ræða vörugjöld upp á 7,5 milljarða, kerfisbreytingu, heila kerfisbreytingu, í miðri vinnslu málsins. Aðrar greinar og önnur atriði í þessu frumvarpi fengu miklu minni umfjöllun heldur en hefði verið eðlilegt. Við skulum hafa það í huga þegar við förum að greiða atkvæði um bandorminn hér á eftir.