úrskurður forseta.
Virðulegi forseti. Hér eru ríkir hagsmunir í húfi og þetta er í fyrsta sinn sem Ísland tekur þátt í slíku samkomulagi. Við erum að verja íslenska hagsmuni til skemmri og lengri tíma. Ísland er viðurkennt núna, eftir allar þær hindranir, og það ætti fólk að vita hér inni, að það hefur verið verulega á brattann að sækja með að við höfum verið við viðurkennd sem strandríki eða með hlutdeild í makríl, hvort sem það eru Norðmenn, Færeyingar eða Bretar sem eiga þar hlut að máli. Það er sögulegt að við séum viðurkennd sem strandríki. Það er verið að ná mjög ábyrgu samkomulagi við þessi lönd. Ég vil sérstaklega draga fram að það er rangt að það hafi ekki verið haft samband við SFS. SFS var upplýst um þetta mál og við bárum ákveðin álitamál undir þau. Það er þannig og það var ekkert ríki sem sat þessa fundi sem var með hagsmunagæsluöfl við borðið. Þetta voru viðkvæmar umræður. Það er mjög viðkvæmt líka, m.a. fyrir þær þjóðir sem eru í þessu samkomulagi, að þurfa að kyngja því að Ísland sé loksins orðið viðurkennt strandríki með 12,5% hlut til skemmri og lengri tíma. (Forseti hringir.) Ekki draga það niður. Það eru öll ríki í þessu, hvort sem það er Noregur eða Færeyjar, sem eru að gefa eftir og Ísland er ekki að gefa mest eftir. (Forseti hringir.) Það sem skiptir mestu máli er að við náum samkomulagi um stjórn á stofni sem er ofveiddur. Það er ábyrg nálgun (Forseti hringir.) sem við verðum að fara í og til lengri tíma (Forseti hringir.) verður vonandi a.m.k. einn sigurvegari og það er makrílstofninn sjálfur.