157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

úrskurður forseta.

[13:27]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Frú forseti. Ég kem hingað upp til að fagna þessu samkomulagi Bretlands, Færeyja, Noregs og Íslands um skiptingu og stjórn makrílstofnsins. Við á Íslandi höfum ríkulega hagsmuni af því að það náist samkomulag um stjórn veiða á makríl svo hægt sé að byggja stofninn upp eftir langvarandi ofveiði þar sem við höfum m.a. verið þátttakendur. Því miður eru vinir okkar í Evrópusambandinu og á Grænlandi ekki hluti af þessu samkomulagi núna en vonandi næst það á næstu mánuðum svo að allir verði hér hlutaðeigendur að. Það er tvíþætt markmið sem liggur hér að baki; það eru sjálfbærar veiðar, svo við snúum við þróun ofveiðinnar síðustu ár, og formleg viðurkenning á Íslandi sem strandríki í þessum mikilvæga stofni. Það hefur ekki náðst áður. Það er ekki rétt að það hafi verið vegna þess að hér hafi boðist tilboð um eitthvað hærra en 12,5% sem samningamenn Íslands þá hafi hafnað. Það er rangt. Þetta er gott samkomulag. Þetta tryggir hagsmuni Íslands og vonandi náum við loksins tökum á því sem sennilega hefur verið reynt síðustu ár en ekki tekist.