157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

úrskurður forseta.

[13:41]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegur forseti. Ég ætla að halda áfram með þann úrskurð sem virðulegur forseti las upp áðan. Þannig vill nú til að nefndin fékk rökstutt minnisblað og framhaldsumsögn um að þær breytingartillögur sem komu inn við 2. umræðu feli í sér mögulega brot á jafnræðisreglu stjórnarskrár. Þegar slíkt er til umræðu þá skiptir mestu máli, ef á það er látið reyna fyrir dómstólum, að það sé skýr skilgreining í lögunum, það sé skýrt markmið og það sé útskýrt af hverju það er þá lögmæt mismunun á milli aðila. Þarna er ég að tala um hvernig útblástur bifreiða sé skráður og eins og breytingin í vörugjöldunum er útfærð í þessu máli þá getur sama ökutæki úr sömu framleiðslulínu verið skráð á þrjá mismunandi vegu og þar af leiðandi verður skattheimta á þrjá mismunandi vegu á alveg eins ökutæki. Það er ekkert brugðist við þessu. (Forseti hringir.) Þetta fær bara tvær umræður hér í þinginu út af því vinnulagi sem hér er.