úrskurður forseta.
Virðulegur forseti. Hér er talað um sögulega makrílsamninga, samninga sem við höfum akkúrat gagnrýnt í mörg ár, Íslendingar, þegar Norðmenn og Færeyingar og jafnvel Evrópusambandið voru að gera samninga sín á milli og skildu okkur og aðrar þjóðir út undan. Hver er munurinn núna? Jú, við erum orðin hluti af þessu en Evrópusambandið og Grænland eru ekki með. Samkvæmt mínum heimildum var Grænlendingum boðin skammarlega lítil prósenta, skammarlega lítill hlutur. Þeir voru skildir út undan, Grænlendingarnir. Þetta er ekki sjálfbær samningur. Þetta er ekki samningur þar sem allar þjóðirnar eru að koma saman og reyna að ná einhverjum tökum. Þetta er ósjálfbær samningur og við erum orðin hluti af klúbbnum sem við gagnrýndum að væri að skilja aðra út undan og skiljum Grænlendinga út undan. Það er það sem við erum að gera í þessum samningi. Það er auðvelt að gera samning þegar þú fórnar 30–35% af kröfum þínum og gefur þær eftir, og þetta eru ekki 12,5% þetta er 10,5% af því að við þurfum alltaf að borga 2% hvort sem við nýtum aðganginn eða ekki, eins og mér skilst. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)