úrskurður forseta.
Virðulegur forseti. Hver er staðan varðandi makrílinn? Á þessu ári minnir mig að við höfum veitt um 570.000 tonn, Alþjóðahafrannsóknaráðið, ICES, skar kvótann niður um 70% í ráðgjöfinni, niður í 174.000 tonn rúmlega, til að bregðast við bágri stöðu stofnsins. Af því ætli Íslendingar séu að skammta sér þá 16,5%? Nei, við erum sem sagt núna að fara í tæplega 400.000 tonna veiði (Gripið fram í.)með Grænlandi og Evrópusambandinu. Það er sem sagt nýi vildarvinaklúbburinn sem við erum komin í, plús Evrópusambandið og Grænland, og svo megum við ekki gleyma því að Rússar veiða makríl líka og það er sami stofninn. Þetta er staðan, þetta er sjálfbærnin. Mínar heimildir segja, ég hef heyrt það, að við höfum boðið Grænlendingum 1% hlutdeild. Þeir gera kröfu um 6,5% og við buðum, ef mínar heimildir eru réttar, 1%.