breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Ég verð að taka undir orð stjórnarandstöðuþingmanna sem hafa komið og rætt þessi mál sem við erum að fara að greiða atkvæði um. Ég tel það alveg ljóst að við þurfum að skilgreina ákveðin hugtök betur. Hugtök eins og venjulegt fólk og skattar virðast vera verulega á reiki hér á milli manna. Almenningur verður að vita hvað er verið að tala um bæði, frú forseti, fyrir kosningar og hverju menn eru að lofa og lofa ekki. Hér í þessu frumvarpi er verið að kreista súrefnið úr einstaklingum, heimilum og fyrirtækjum. Þjóðarkakan er að minnka. Það þýðir að hver sneið, hvort sem þú ert í hárri tekjutíund eða lægri, minnkar fyrir alla. Heildarskattsporið minnkar að lokum.