lengd þingfundar.
Hæstv. forseti. Ég hef mjög oft tekið þátt í málþófi á Alþingi og er stoltur af því. Það hef ég gert þegar ég hef talið að lengd umræða gæti orðið til þess að koma í veg fyrir spjöll á íslenskri náttúru eða á íslensku samfélagi.
Hv. þm. Guðmundur Steingrímsson sagði að það hefði myndast einhver hefð í seinni tíð fyrir langri umræðu um fjárlög. Ég held að það sé ástæða fyrir því, það er vegna þess að fjárlög eru orðin að meira en spurningu um krónur og aura. Við erum að fjalla um kerfisbreytingar. Þegar ákveðið er í fjáraukalögum að láta 1,2 milljarða til að leiðrétta samninga við einkareknar læknastofur en við neitum að láta Landspítalann og opinberar heilbrigðisstofnanir fá peninga til að leiðrétta sína kostnaðarsömu samninga sjáum við að við erum að fjalla um kerfisbreytingar. (Forseti hringir.) Það á að svelta annan aðilann en hygla hinum. Við erum ekki bara (Forseti hringir.) að fjalla um krónur og aura, við erum að fjalla um skipulag á íslenska velferðarkerfinu.