jöfn staða og jafn réttur kynjanna.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir umfjöllunina. Nú skilst mér að hæstv. dómsmálaráðherra hafi verið aðstoðarmaður þess ráðherra sem kom þessu hérna í gegn þannig að ráðherrann ber einhverja vissa pólitíska ábyrgð á þessu öllu, sem nú á að afnema að fenginni reynslu sem þó lá snemma fyrir, um að þessi jafnlaunavottun, sem kostar atvinnulífið fleiri milljarða á hverju ári, hafi ekki haft áhrif til jöfnunar á launamun kynjanna. Þetta er athugun sem mig minnir að ég hafi séð frá Háskóla Íslands um að sé einfaldlega niðurstaðan af þessu kerfi eftir athuganir á því. Þá spyr maður kannski hæstv. dómsmálaráðherra: Höfum við gengið götuna til góðs á þessum árum, frá því að þetta var samþykkt, eftir á að hyggja? Viðvörunarbjöllurnar hljómuðu snemma af hálfu sumra en aðrir töldu þetta heillaskref, að fara þarna með tiltölulega freklegt inngrip af hálfu ríkisvaldsins inn í rekstur frjálsra fyrirtækja, auðvitað stofnana líka, sem höfðu svo engin áhrif eftir á að hyggja, þegar allt er komið í ljós.