jöfn staða og jafn réttur kynjanna.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir svarið en ég tel þó að hæstv. ráðherra þurfi kannski að gera upp við sjálfan sig hvort það séu aðgerðir eins og þessar eða þá bara verðleikar og frammistaða kvenna sem fleyta þeim áfram á vinnumarkaði, vegna þess að hér lýsir hæstv. ráðherra því að það séu aðgerðirnar sem skipti öllu máli. Engu að síður á að taka þessa aðgerð úr sambandi vegna þess að hún er, eins og liggur fyrir, ekki að hafa nein tilætluð áhrif þannig að ég veit ekki alveg hvort er. Þessi aðgerð sem núna á að leggja af kostaði samfélagið fleiri tugi milljarða eða alla vega meira en tug milljarða fyrir áhrif sem liggur fyrir að voru ekki nein. Það hefur enginn getað bent á þau nákvæmlega, þó að hæstv. ráðherra segi á sama tíma að áhrifin hafi verið svo afskaplega mikil en að núna eigi að taka þetta allt saman úr sambandi, í raun og veru að afleggja jafnlaunavottunina, þ.e. alla vega að taka úr sambandi þennan bransa sem hefur orðið til utan um það að einhver fyrirtæki séu stofnuð utan um það að fara inn í önnur fyrirtæki og allt saman renni þetta einhvern veginn (Forseti hringir.) í raun og veru í algjörlega gagnslausa vinnu vegna þess að ríkisvaldið er með einhver háleit (Forseti hringir.) hugmyndafræðileg markmið sem bera engan árangur. Auðvitað kostar það atvinnulífið stórfé. Þannig að ég fagna því að það sé verið að leggja þetta niður (Forseti hringir.) og menn verða að gera þetta upp við sig.