153. löggjafarþing — 59. fundur,  2. feb. 2023.

útlendingar.

382. mál
[22:58]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég ætla bara að taka undir með öllu því sem hér hefur komið fram í ræðum hv. þingmanna hvað varðar útlendingafrumvarpið. Ég fagna því að hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir, formaður hv. allsherjar- og menntamálanefndar, sé hér í þingsal af því að ég vona að hv. þingmaður muni þá taka þær ábendingar til greina sem við höfum verið að reyna að koma hér á framfæri. Við erum ekki búin að halda fáar ræður þar sem við komum athugasemdum, ábendingum og áhyggjum okkar á framfæri hvað varðar efnislega annmarka frumvarpsins. Það liggur skýrt fyrir að það þarf að skoða fleiri atriði í því frumvarpi sem hér um ræðir miklu betur, til að mynda hvort þetta standist stjórnarskrá og mannréttindasáttmála Evrópu, sem við erum búin að fullgilda og lögfesta hér á landi, og líka hvort þetta fari í bága við almennar stjórnsýslureglur stjórnvalda. Að lokum hvet ég hv. þingmann og nefndarformann til að kalla Pál Hreinsson sem gest á fund hv. allsherjar- og menntamálanefndar.