137. löggjafarþing — 6. fundur,  26. maí 2009.

framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum.

35. mál
[18:40]
Horfa

Atli Gíslason (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Hv. þm. Einar K. Guðfinnsson er að mínu mati borubrattur. Hann kemur ekki einu sinni upp og segir: Eftir á að hyggja braut ég af mér. Nei, þetta er forherðing. Það liggur klárt fyrir að tvíhliða kjarasamningur var brotinn einhliða og það var ólögmætt. Ég tek undir orð hæstv. sjávarútvegsráðherra að hér er stund afsökunarbeiðni.

Málssókn var yfirvofandi. Gripið var til þeirra ráða sem skýrir og skynsamir menn gera. Þeir hefja samræðu og ná sáttum og það var gert í grænum hvelli. Ekki datt hæstv. þáverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í hug að fara í þessa sáttavinnu og samráð jafnvel þó að fyrir lægju skýrar niðurstöður um að um lögbrot væri að ræða.

Það var líka spurt í umræðunni fyrir jól: Af hverju var ekki gætt jafnræðis og samræmis? Af hverju voru ekki linaðar þjáningar skuldara með verðtryggða skuldabagga á bakinu? Af hverju var það ekki gert eins og virðulegur forseti benti á og vitnaði var til hér áðan? Ég hygg að hv. þingmaður væri maður að meiri ef hann segði að eftir á að hyggja hafi þetta verið rangt í stað þess að vera að bera hér í bætifláka.