fjáraukalög 2009.
Frú forseti. Mig langar að spyrja hv. þm. Guðbjart Hannesson, formann fjárlaganefndar, nánar um hvernig við eigum að haga eftirlitshlutverki Alþingis gagnvart framkvæmd fjárlaga. Nú hefur það töluvert verið rætt í fjárlaganefnd í sumar og þar sem ég hef ekki áður setið í fjárlaganefnd finnst mér mjög athyglisvert að fylgjast með því hvernig þessari vinnu hefur verið háttað. Ég veit að um nokkurra ára skeið hefur verið rætt á vettvangi þingsins að það þyrfti að halda betur utan um framkvæmd fjárlaga.
Mig langar í kjölfar þess sem fram kom í ræðu hv. þingmanns um að þegar litið er til framkvæmdar fjárlaga gæti verið gagn að því að hjá einstökum málaflokkum væru óráðstafaðir liðir að því leyti til að þá þyrfti ekki að koma fyrir þingið til að sækja auknar heimildir í fjáraukalögum. Að sama skapi mætti segja að það að vera með óráðstafaða potta gæti líka skapað veruleg vandamál hvernig úr þeim ætti að spila.
Mig langar til að spyrja hv. þingmann að því hvað hann átti nákvæmlega við, hvaða bætur eru í því fólgnar. Einnig vil ég spyrja hv. þingmann: Hvernig sér hann fyrir sér eftirlitshlutverk þingsins þróast? Hann nefndi í ræðu sinni að þetta snerist töluvert um upplýsingaöflun. Upplýsingaöflun er ágæt svo langt sem hún nær en hún er enginn grundvöllur fyrir því að auka eftirlit þingsins. Það yrði að gerast með skýrari hætti en bara með því að kalla eftir skýrslum eða kalla menn fyrir nefnd. Þetta hefur verið rætt töluvert undanfarna mánuði og ég veit að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn virðist hafa haft skoðanir á þessu. Jafnframt væri fróðlegt að heyra nánar hvaða skoðanir hv. þm. Guðbjartur Hannesson hefur hvað þetta varðar og hvernig hann hugsar sér að þróa þetta áfram á komandi missirum.