fjáraukalög 2017.
Herra forseti. Bara örstutt. Ég held að hv. þingmaður hafi hitt naglann á höfuðið hvað þetta varðar í ljósi þess hvað tíminn er skammur. Í ljósi þess að fjárlaganefnd þingsins hefur einungis eina viku til að fjalla um fjárlagafrumvarp sem tekur venjulega þrjá mánuði að fjalla um, þá leggur það enn meiri kröfur á okkur í nefndinni og á allar fagnefndir að vera með mjög ríkt eftirlitshlutverk og vera mjög aktíf í að kalla eftir upplýsingum frá hinu opinbera og fylgjast með hvort hér sé farið rétt með og annað slíkt.
Tíminn er skammur til að fjalla um fjárlagafrumvarpið. Hann er enn skemmri þegar fjallað er um fjáraukalögin. Þau eru nú 25 milljarðar. Það eru meiri fjármunir en veittir eru til háskólastigsins á Íslandi. Það eru engir smámunir. Það eru ekki litlir fjármunir þegar við drögum það allt saman: 25 milljarðar sem við heimilum með þessum fjáraukalögum. Við fáum nokkrar klukkustundir til að fjalla um það. Ég veit að starfið innan fjárlaganefndarinnar verður fyrst og fremst sýndarmennska. Ég held að allir þingmenn viti það. Það verður í algjöru skötulíki, því miður, því að tíminn er skammur. Ég efa að við tökum heilan fund í að fjalla um þetta mál, sem er miður. Að sjálfsögðu ættum við að taka miklu meiri tíma í að fjalla um bæði fjárlögin og fjáraukalögin því að almenningur sér að þessi vinnubrögð eru ekki okkur til framdráttar og ekki fagleg að neinu leyti.
