144. löggjafarþing — 6. fundur,  16. sept. 2014.

virðisaukaskattur o.fl.

2. mál
[21:01]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mér finnast skattsvik alltaf vera jafn stórt vandamál og jafn alvarlegur glæpur hvort sem verið er að svíkja undan skatti af einhverju sem er í háu skattþrepi eða lágu skattþrepi. Ég veit eiginlega ekki hvernig ég á að svara þessu öðruvísi.

Það kann vel að vera, eins og ég hef sagt hér áður, að einhvers staðar megi hliðra til eða gera breytingar í kerfinu okkar eins og við höfum það í dag. En hvað heildarmyndina varðar, annars vegar að fella niður vörugjöldin og hins vegar að hækka skattinn á mat, finnst mér það prinsipelt röng nálgun.

Það breytir engu að síður því að ég tel skattsvik alltaf vera jafn mikil skattsvik hvort sem það er gert í flóknu eða einföldu kerfi. Við eigum ekki að breyta lögunum okkar í þeirri von að fólk hætti þar með að brjóta þau. Finnur fólks sér ekki bara aðrar leiðir til að svíkja undan skatti hvernig sem kerfið lítur út, þ.e. ef fólk er á annað borð þannig innstillt að það ætli að svíkja undan skatti?