144. löggjafarþing — 6. fundur,  16. sept. 2014.

virðisaukaskattur o.fl.

2. mál
[21:20]
Horfa

Árni Páll Árnason (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil beina spurningu til hv. þingmanns af því hann er eindreginn áhugamaður um einföldun skattkerfisins. Mig langar að spyrja hann aðeins út í hvort honum finnist ekki frekar snautlegt það sem fáum að sjá hér hjá hæstv. fjármálaráðherra. Það er ekkert einfaldara að hafa skatt í 12% en í 7. Það eru, eins og hv. þingmaður rakti, áfram fjögur þrep í virðisaukaskatti.

Hvað undanþágukraðakið varðar er komið með alveg óskaplega litla breytingu. Það er aðeins að fella út undanþágu fyrir fólksflutninga sem eru í afþreyingarskyni, en það er ekkert með fjölda marga aðra þætti. Það hefur flogið fyrir í umræðunni í dag að umfang seldra veiðileyfa og þjónustu við veiðimenn séu 20 milljarðar á ári. Það er aldeilis ástæða til að beygja sig eftir virðisaukaskatti af þeim peningum og er eiginlega með ólíkindum að hann sé ekki lagður á fyrst menn eru að hér að koma fram undir því yfirskyni að það eigi að einfalda kerfið.

Það er líka búið að benda á að það eru rekin hér fyrirtæki í þjónustu við ferðamenn sem veita auðvitað aðra afþreyingarþjónustu, eins og t.d. sundstaðir sem ekki eru hefðbundnir sundstaðir, líkt og Bláa lónið, og selja aðgangseyri á fleiri þúsund krónur, enda að stíla fyrst og fremst á erlenda ferðamenn. Finnst hv. þingmanni ekki að þetta ætti að vera forgangsverkefni, að byrja á því að hreinsa það upp frekar en að leggja auknar álögur á mat?