aðgerðir í húsnæðismálum.
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á að þakka málshefjanda fyrir að taka húsnæðismálin á dagskrá. Þessi málaflokkur er gríðarlega mikilvægur og okkur Framsóknarmönnum mjög hugleikinn. Við lögðum mikla áherslu á húsnæðismál í ríkisstjórnartíð okkar árin 2013–2016. Það er gott að sjá að þær umfangsmiklu aðgerðir sem farið var í undir stjórn ráðherra Framsóknar, Eyglóar Harðardóttur, eru nú að skila sér í auknu framboði íbúða á húsnæðismarkaði. Þetta eru stærstu aðgerðir í uppbyggingu leiguhúsnæðis sem farið hefur verið í í marga áratugi. Nú þegar hefur verið úthlutað stofnframlögum til bygginga á 509 leiguheimilum sem munu rísa í 14 sveitarfélögum og uppi eru áform um byggingu þúsunda íbúða. Ég held að við getum öll verið sammála um það að verkefni í þessum málaflokki eru ekki átaksverkefni heldur krefjast þau stanslausrar, markvissrar vinnu sem halda þarf þétt áfram. Það er því gott að sjá hve vel hv. málshefjandi og fyrrverandi ráðherra tók á þessum málum og vann áfram á grunni frá fyrri ríkisstjórn.
Ég vil þakka honum góða framgöngu og hans góða framlag til málaflokksins. Eins fögnum við Framsóknarmenn því hve vel vinnu okkar hefur verið tekið af öðrum þingmönnum og vil ég benda á mál sem þingmenn Samfylkingarinnar hafa lagt hér fram og byggir á þeim grunni.
Hæstv. forseti. Þetta tel ég sýna hve raunhæfar og skynsamlegar aðgerðir Framsóknarmanna eru. Við Framsóknarmenn munum að sjálfsögðu halda áfram að gera vel í þessum efnum og því fagna ég orðum hæstv. núverandi ráðherra málaflokksins um þau áform sem nú eru uppi í húsnæðismálum. Ég hvet ráðherrann til góðra verka og brýni hann til að horfa sérstaklega til landsbyggðarinnar og skoða fleti á því hvernig jafna má aðstöðumun landsmanna þegar kemur að húsnæðisbyggingum. Það er jafnréttismál. Við hljótum öll að geta verið sammála um það.