fjáraukalög 2017.
Herra forseti. Við í fjárlaganefnd fáum fjölmargar beiðnir sem fela í sér mikla þörf á peningum ríkissjóðs. Ég velti fyrir mér hvort þessum milljónum sem við erum hugsanlega að færa Mosfellsbæ sé kannski betur varið í önnur verkefni. Þetta kemur svolítið sérkennilega fyrir sjónir.
Í seinna andsvarinu langar mig að spyrja um annað heimildarákvæði. Það er ákvæði um að ganga til samninga við Reykjavíkurborg um skipti á lóðum. Með þessum samningi fær ríkið lóð innan vallar flugvallarins. Tengist þetta að mati ráðherrans með einhverjum hætti því að það sé verið að fastsetja flugvöllinn í Vatnsmýrinni? Númer tvö: Er búið að leggja eitthvert mat á verðmæti þessarar lóðar? Getum við hugsanlega staðið frammi fyrir því að ríkið muni þurfa að greiða einhverja peninga á grundvelli þeirra samninga sem munu eiga sér stoð í þessu heimildarákvæði?