fjáraukalög 2017.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir áhugaverða spurningu. Já, mér finnst munurinn á fjáraukalögum, þetta 2,2% frávik, vera mikið í þessu samhengi, sérstaklega í ljósi þeirra krafna sem við gerum samkvæmt lögum til fjáraukalaga. Það er mikið. En ég get alveg sagt það fullum fetum að þegar ég ber saman fjárlagafrumvarpið í september við fjárlagafrumvarpið í dag og munurinn er 2%, finnst mér það mjög lítið. Þá set ég það í þann pólitíska veruleika sem við störfum eftir. Þá gagnrýni ég alla ríkisstjórnarflokkana sem lofuðu miklu meiru en 2% breytingu á septemberfrumvarpinu. Það var nú einn flokkur sem lofaði bókstaflega 100 milljarða króna innspýtingu í innviði. Það var Sjálfstæðisflokkurinn. Ég skoðaði stefnuskrá allra flokkanna, og það var enginn flokkur sem tefldi slíkri tölu fram í stefnuskrá fyrir utan Sjálfstæðisflokkinn. Aðrir stjórnarflokkar lögðu mikla áherslu á að hér stæðum við frammi fyrir mikilli innviðauppbyggingu. Þess vegna urðu mér það mikil vonbrigði að sjá að það fjárlagafrumvarp sem við ræðum núna væri einungis með 2 prósentustiga fráviki frá því frumvarpi sem að minnsta kosti tveir af þremur ríkisstjórnarflokkunum gagnrýndu hatrammlega. Ef ég set það í þann búning eru 2% ekki neitt. Eins og hv. þingmaður veit og nánast allir þingmenn og hagsmunaaðilar sem komu á fund fjárlaganefndar, þar sem við sitjum báðir, hefur verið bent á hversu lítið sé í þessu fjárlagafrumvarpi og alls ekki í neinu samræmi við það sem lofað var fyrir einungis sjö vikum síðan.