um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Ég neita því sem hér var sagt að ég hafi á einhvern hátt staðið fyrir því að koma í veg fyrir að mál kæmust úr nefndum eða unnið gegn því að mál væru tekin fyrir og rædd í nefndum, það kemur ekki til greina.
Málin sem við erum með í nefndinni, sem menn óttast að komi hingað inn, eru mál um að eldri borgarar megi vinna án skerðingar. Það eru þegar til lög þar sem þeir mega vera á hálfum lífeyri og hálfum bótum sem eru algjör ólög, sem eru miklu verri. Síðan erum við með lög um að öryrkjar eigi ekki að vera skattaðir, styrkir, lyfjastyrkir og fleiri styrkir. Það er kannski erfitt að ræða það vegna þess að þarna er verið að rétta með vinstri hendinni og taka meira með hægri.
Það var einhver sem sagði að það hefði enginn dáið, en ég held að það séu gamlir draugar hérna á ferð sem eru búnir að heltaka umræðuna vegna þess að þeir eru að reyna allt sem þeir geta til að stoppa mál í nefndum. Ég held að við þurfum bara að fá prest og vígt vatn.