153. löggjafarþing — 65. fundur,  20. feb. 2023.

íþrótta- og æskulýðsstarf.

597. mál
[17:36]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegi forseti. Á síðasta löggjafarþingi lagði ég fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs. Með frumvarpinu var lagt til að gerðar yrðu breytingar á gildandi lögum, einkum með hliðsjón af því hvernig starf samskiptaráðgjafans hefur þróast frá því að embættið tók til starfa. Ekki náðist að afgreiða frumvarpið fyrir þinglok og er það lagt fram að nýju með ákveðnum breytingum, nú sem frumvarp til laga um breytingu á lögum á sviði íþrótta- og æskulýðsstarfs.

Virðulegur forseti. Meginefni þessa frumvarps er að skýra starf og hlutverk samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs og aðlaga að því hvernig það hefur þróast frá því að samskiptaráðgjafi tók fyrst til starfa árið 2020. Eins og kunnugt er eiga lög um samskiptaráðgjafa rætur að rekja til frásagna íþróttakvenna undir #églíka, eða #metoo, og er meginhlutverk samskiptaráðgjafans að bæta umgjörð íþrótta- og félagsstarfs með því að stuðla að öryggi bæði barna og fullorðinna sem og annarra sem taka þátt í slíku starfi. Starf samskiptaráðgjafa hefur gefið góða raun og ljóst er að til staðar er þörf fyrir úrræðið. Eins og eðlilegt er hefur hlutverk samskiptaráðgjafa þó verið í ákveðinni mótun síðustu ár enda hefur sambærilegt úrræði ekki verið til staðar fyrir samþykkt laga um samskiptaráðgjafa árið 2019.

Virðulegur forseti. Starf samskiptaráðgjafa er fjölbreytt líkt og endurspeglast í hlutverkinu eins og það er skilgreint í gildandi lögum. Þó er ljóst að í lögunum er ekki kveðið á um hlutverk samskiptaráðgjafa þegar kemur að útgáfu ráðgefandi álita eða umsagna í kjölfar formlegra kvartana. Reynslan hefur hins vegar sýnt að sá hluti starfsins er afar mikilvægur til að lögin nái markmiði sínu. Þess vegna er lagt til með frumvarpi þessu að fjallað verði um þennan þátt hlutverksins í löggjöfinni sjálfri. Samskiptaráðgjafi hefur í vissum málum þurft að fara í upplýsingaöflun og samskiptaráðgjafi hefur í framhaldinu gefið út álit eða umsagnir í kjölfar formlegra kvartana. Þá eru viðtöl tekin bæði við þann sem kvartar og þann eða þá sem kvartað er undan, auk þess sem annarra viðeigandi upplýsinga er aflað. Í framhaldi hefur samskiptaráðgjafi gefið út álit sitt og lagt fram tillögur til úrbóta. Reynslan af þessu úrræði hefur sýnt að um er að ræða mjög þarfa og brýna þjónustu við þetta mikilvæga starf í landinu.

Virðulegi forseti. Til viðbótar við þessa breytingu á hlutverki samskiptaráðgjafa er jafnframt lagt til að gerðar verði ákveðnar breytingar á gildandi lögum sem miða einkum að því að taka af allan vafa um heimildir samskiptaráðgjafa til að vinna með persónuupplýsingar og viðkvæm gögn. Vegna eðlis starfsins er ljóst að samskiptaráðgjafa þarf að vera heimilt að taka við tilteknum upplýsingum og vinna með þær og er mikilvægt að öll sú vinna fari fram í samræmi við lög. Ljóst er að til þess að tryggja betur að svo megi verða þarf að gera ákveðnar breytingar á ákvæðum laganna.

Til viðbótar við þær breytingar sem ég hef farið yfir er með frumvarpinu lagt til að gerðar verði breytingar á ákvæði 16. gr. gildandi íþróttalaga. Ákvæðið kom nýtt inn í íþróttalög árið 2019 en það fjallar um mikilvægi þess að litið sé til ákveðinna atriða sem tengjast mögulegum refsiverðum brotum einstaklinga sem hyggjast sinna íþróttastarfi með börnum og ungmennum áður en viðkomandi einstaklingar eru ráðnir til starfa. Vegna ákveðins óskýrleika í orðalagi hefur ákvæðið valdið vandkvæðum í framkvæmd og er þeim breytingum sem lagðar eru til á ákvæðinu einkum ætlað að taka af allan vafa um túlkun og gildissvið þess.

Virðulegur forseti. Ég hef farið yfir þær breytingar sem lagðar eru til með frumvarpinu sem eru til þess fallnar að tryggja þeim sem orðið hafa fyrir atvikum eða misgerðum í íþrótta- og æskulýðsstarfi, þar með talið börnum og ungmennum, betri ráðgjöf og viðeigandi stuðning. Þá miða breytingarnar sem felast í frumvarpinu að því að tryggja fullnægjandi heimildir til vinnslu persónuupplýsinga og þar með styrkja réttindavernd allra hlutaðeigandi aðila á þann hátt að hvorki sé unnið með upplýsingar né þeim miðlað umfram það sem nauðsynlegt er.

Virðulegi forseti. Að lokinni þessari umræðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis.