framkvæmd EES-samningsins.
Herra forseti. Mikið er ég nú tilbúin í umræður um það hvernig stjórnvöld hafa haldið á hagsmunagæslu í hinu svokallaða flugvallarmáli. Það er bara mjög kærkomið vegna þess að við höfum sinnt þeirri vinnu mjög vel og er einmitt mjög gott og skýrt merki um það hverju það skiptir að hafa almennilega og sterka hagsmunagæslu úti til að standa vörð um samninginn því að ekki er einhver annar að fara gera það fyrir okkur.
Hv. þingmaður ræðir mikið um frelsi bænda og það þurfi að losa þá úr viðjum þess kerfis sem þeir eru í. Við höfum auðvitað fullt frelsi til þess að gera það, algerlega óháð því hvort við göngum í Evrópusambandið eða ekki og við þurfum sannarlega ekki að ganga í tollabandalag til að auka frelsi eða breyta kerfi í kringum landbúnað eða bændur. Það þarf ekki að ganga í tollabandalag til að gera það.
Varðandi vátryggingamarkaðinn og fjármálamarkaðinn þá er það nú samt þannig að samningurinn nær til beggja þessara markaða þannig að það regluverk sem um þá gildir er algerlega inn í EES-samningnum. En vissulega breytir EES-samningurinn ekki um gjaldmiðil.