Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 66. fundur,  21. feb. 2023.

framkvæmd ETS-samningsins.

595. mál
[15:23]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Mér finnst þessi andsvör vera farin að líkjast skriflegum fyrirspurnum. Ég átta mig á því hvað hv. þingmaður er að fara og auðvitað er það alveg rétt að það eru ótrúlega fjölbreyttar aðstæður innan Evrópusambandsins og lönd þar sem eru forrík og önnur sem eiga í meiri vandræðum. Ég átta mig alveg á því að við erfiðar aðstæður sem hafa blasað við síðustu ár, m.a. vegna styrjaldar og annað, þá hefur hagvöxtur verið lítill og það hefur áhrif á vaxtastig og allt það. Hins vegar svona heilt yfir, ef við horfum til lengri tíma, þá hlýtur hv. þingmaður að vera sammála mér um að það er almennt lægra vaxtastig á evrusvæðinu heldur en í krónuhagkerfinu og við hljótum bara að vera að hugsa þetta út frá hvernig veruleikinn blasti við okkur hér á Íslandi með evru. Ef við tökum bara eina atvinnugreinin sem er okkur gríðarlega mikilvæg, tökum bara ferðaþjónustuna: Ef við værum með stærri mynt, hver sem hún nú væri, þyrftum við fyrst og fremst að hafa áhyggjur af innviðum, hvernig við tökum á móti gestum, að þeir traðki ekki niður náttúruna, gangi ekki á okkar dýrmætu verðmæti og hvernig við ættum að afla tekna af þessari auðlindanýtingu en við þyrftum ekki á sama tíma að hafa áhyggjur af því þegar þær gleðifréttir birtust okkur að ferðamannafjöldinn væri tvöfaldast að þá kæmi svo mikill þrýstingur á krónuna að það þyrfti að vinna gegn styrkingunni á einhverjum öðrum stöðum sem myndi nefnilega hafa áhrif á útflutningsgreinar. Við erum bara í svo samtengdum heimi og við eigum í svo miklum alþjóðaviðskiptum að það eru alltaf verri og verri rök fyrir því að halda úti örmynt í slíkum veruleika.