framkvæmd EES-samningsins.
Frú forseti. Það er nú ýmislegt sem væri áhugavert að ræða nánar af því sem hv. þingmaður nefndi en ég get ekki sleppt því að nota þetta tækifæri og tiltaka það sérstaklega að í umræðu um hreinorkupakka og áframhaldandi þróun á raforkumarkaði, sem snertir okkur með óbeinum hætti og að sumu leyti beinum hætti, er algerlega skýrt að okkur ber engin skylda til að leggja streng að beiðni eða valdboði Evrópusambandsins. Það átti ekki við í þriðja orkupakkanum, það á ekki við í hreinorkupakkanum og það skiptir bara máli að það sé alveg ljóst. Það er alveg skýrt. Þegar að því kemur að búið er að taka þann pakka inn í EES-samninginn og við þurfum að fjalla um hann hér þá veit ég að það verður rætt nánar og það mun þá liggja mjög skýrt fyrir fyrir fram í málinu að svo er ekki. Svo er ágætt að rifja upp að það sem sagt var að myndi gerast í kjölfar þriðja orkupakka hefur að sjálfsögðu ekki gerst, enda var umræðan þá á töluverðum villigötum. Ég vil því nota þetta tækifæri til þess að reyna að koma í veg fyrir að það verði hin almenna lína núna að með þessum breytingum verði okkur gert skylt að leggja sæstreng gegn okkar vilja. Það er fullkomlega fjarstæðukennt og verður alls ekki svo, heldur er það einfaldlega okkar ákvörðun ef til þess kemur. Varðandi umræðu um það að nú séu menn að selja rafmagn í gegnum tölvuna þá er það bara það sem koma skal. Miðað við umfjöllun um okkar grænu nýsköpunarverkefni og að binda kolefni þá kemur mér á óvart málflutningur hv. þingmanns, þannig að mig langar eiginlega bara að spyrja: Ef hann gæti valið, myndi hann kjósa að Ísland væri aðili að EES-samningnum eða myndi hann kjósa að við værum það ekki?