framkvæmd EES-samningsins.
Frú forseti. Ég myndi ekki líta svo á að landbúnaðarkerfi Evrópusambandsins myndi með einhverjum hætti leysa það sem hv. þingmaður bendir á varðandi okkar kerfi hér. Það er sannarlega þannig að við viljum betra aðgengi fyrir okkar sjávarafurðir inn á Evrópumarkað, enda erum við í dag í raun með lakari kjör eða lakara aðgengi að þeim markaði en sum þriðju ríki, sem okkur þykir ekki mjög í í anda EES-samningsins. Við viljum betra aðgengi án þess að semja þannig að það þurfi að kaupa það of dýru verði fyrir aðrar atvinnugreinar. Það er bara einfaldlega í anda samningsins að við höfum mjög gott og mikið aðgengi fyrir okkar sjávarafurðir inn á þann markað.
Ég er ekki á þeirri skoðun að það sé einhvern veginn bannað eða óþægilegt að ræða um Evrópumál, EES-mál, Evrópusambandsaðild og þar fram eftir götunum. Mér finnst það bara fínt. Ég hef gaman af því og er til í að gera það hvenær sem er. En ég teldi það einfaldlega óheiðarlegt af mér að fara í mikla för og tala fyrir einhverju sem er algerlega gegn minni sannfæringu. Það hefur legið fyrir hver stefna þeirra flokka sem mynda þessa ríkisstjórn er og það er kannski efni í aðra umræðu almennt hvar þingmenn eða flokkar standa þegar kemur að þjóðaratkvæðagreiðslum um ýmis mál. En þegar hv. þingmaður fjallar um helstu kosti Evrópusambandsins og mikilvægi þess að við séum með þeim í liði þá lít ég svo á að við séum með þeim í liði þegar kemur að mikilvægustu þáttunum og það er einmitt í gegnum EES-samninginn og svo í þéttu pólitísku samtali.