Vestnorræna ráðið 2022.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir svarið. Það var skilmerkilegt að því leyti að fyrst málið var ekki rætt sérstaklega á þessum vettvangi þá er eðlilegt að svör við nákvæmlega minni spurningu séu ekki alveg á reiðum höndum og séu þá svolítið út fyrir efnið. En spurningin var, svona af forvitni, um af hverju markaðir lokast gagnvart Færeyingum en ekki okkur og Færeyingar séu greinilega settir í þá stöðu að vera svona háðir Rússum. Maður skilur það kannski að vissu leyti að þeir ákveði að halda þessu áfram fyrst þetta skiptir þá svona miklu máli. En fyrst þetta er í raun ekki atriði sem er á vettvangi ráðsins þá ætla ég ekki að pressa á frekari svör og svala kannski þessari forvitni minni á einhverjum öðrum vettvangi.