Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 66. fundur,  21. feb. 2023.

Fríverslunarsamtök Evrópu og Evrópska efnahagssvæðið 2022.

647. mál
[19:29]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Ingibjörgu Ólöfu Isaksen fyrir góða framsögu og einnig góða formennsku í nefndinni. Nefndin hefur náð mjög vel saman og unnið þvert á flokka í þessum málum sem snúa að EFTA og EES. Fyrir marga sem ekki taka þátt í svona starfi þá lítur kannski svona alþjóðastarf út sem einhver skrýtinn hlutur og menn gætu haldið að þetta væri bara ástæða til að eyða skattpeningum borgaranna í einhver ferðalög fyrir þingmenn. En ég held að við séum öll nógu þreytt á því að ferðast að við getum sagt að ekki sé um slíkt að ræða. Ég kom nýr inn í þessa nefnd á síðasta ári og hef fengið að kynnast starfinu mjög náið og ég verð að segja það fyrir mitt leyti að það kom mér á óvart í rauninni hversu mikilvægt þetta starf. Við töluðum hér fyrr í dag um EES-samninginn og skýrsluna um hann og eitt af því sem við ræddum þar er mikilvægi hagsmunagæslunnar. Það er nákvæmlega það sem gerist t.d. í EES-hluta þessarar nefndar. Þar erum við að hitta kollega okkar og tengiliði innan Evrópusambandsins og ræða við þá um mál sem eru ekki komin eins langt á veg og þegar þau koma loksins hingað inn í þingið mörgum mánuðum eða jafnvel árum seinna. Það er ótrúlega mikilvægt að við getum látið í ljós okkar skoðanir á því sem Evrópusambandið er að gera og að við getum haft jafnvel áhrif á það. Sumir gætu spurt sig: Hvaða áhrif getur það haft að mæta í einn, tvo daga til Strassborgar eða Brussel og hitta einhverja aðila? Jú, það er kannski ekki bara það að við náum að tala við viðkomandi í klukkutíma á einhverjum fundi heldur að þarna myndast tengsl. Það myndast tengsl sem gera það að verkum að það er hægt að halda áfram með þær samræður við viðkomandi og skýra út af hverju eitthvað er. Oft erum við að hitta þá aðila sem leiða vinnuna t.d. innan Evrópuþingsins. Það að við getum látið viðkomandi vita hverjir hagsmunir Íslands séu sem ættu að vera hafðir til hliðsjónar er mjög mikilvægt.

Ég myndi í rauninni segja að ég hefði viljað sjá þingið styrkja enn betur þetta starf, og vegna þess hvaða hæstv. forseti situr nú í stól forseta þá langar mig að segja að það mætti víkka þetta starf enn meira út, sér í lagi starfið tengt EES og EFTA. Það er mikilvægt að við, þetta þing, höfum rödd í þessum umræðum og í þessu starfi. Eins og það er núna þá förum við ekki það oft á ári út að við náum að ræða öll þau verkefni sem eru í gangi heldur verðum við að velja einstaka verkefni og það væri kannski hægt að taka fleiri hluti fyrir ef meira væri um slíka fundi. Það er mikilvægt að átta sig á því að þetta er tenging þingsins inn í allt það sem er að koma frá Evrópusambandinu. Hér fyrr í dag voru menn að kvarta yfir skriffinnskunni í Brussel. Það er rosalega mikilvægt, ef við ætlum ekki bara að vera þiggjendur að fullt af reglugerðum og tilskipunum og öllu þessu frá Brussel, að við séum með þessar leiðir til þess að hafa áhrif snemma og við þurfum að hugsa það hvernig er hægt að gera meira af slíku. Ég myndi hvetja formann Íslandsdeildarinnar og hæstv. forseta til að ræða það hvernig væri hægt að styrkja þetta starf enn meira vegna þess að ef við látum hlutina bara malla eins og þeir hafa mallað þá höfum við ekki nógu mörg tækifæri til þess að tryggja að okkar hagsmunum sé vel borgið og við getum skapað tengsl sem gera það að verkum að þegar á þarf að halda þá höfum við einhverja aðila sem við getum leitað til. Hafandi farið í gegnum margar krísur sjálfur þá veit ég að það skiptir rosalegu máli að hafa einhvern sem þú hefur hitt áður, hefur rætt við áður. Við tölum oft um þetta. Nú erum við nýbúin að upplifa mjög stóran jarðskjálfta í Tyrklandi og bara síðast í fréttum í gær var talað við fulltrúa úr íslenska hópnum sem talaði um það hvað það skipti miklu máli að þegar hún kom á vettvang þá var þar einhver sem hún hafði hitt áður og það var hægt að ýta til hliðar öllu veseninu við að kynnast aðilanum og fara strax að gera hlutina. Nákvæmlega það sama á við ef við myndum upplifa aðra bankakrísu eða einhverja slíka atburði á slíku stigi, að við séum þá búin að byggja upp þessi sambönd og þau sambönd þurfa m.a. að vera frá þinginu yfir til þingmanna í Evrópuþinginu, í Evrópuráðinu o.s.frv.

Mig langar bara að ítreka það sem ég sagði áður: Ég þakka kærlega formanninum fyrir góða stjórn og öðrum meðlimum í þingmannanefndinni fyrir gott samstarf í þessari mikilvægu nefnd.