Virðisaukaskattur.
Björgvin G. Sigurðsson (Sf) (andsvar):
Virðulegi forseti. Það gengur illa að fá Framsóknarflokkinn til að taka af skarið um hvort hann ætli að styðja þá þverpólitísku samstöðu sem gæti myndast um það að lækka matarskattinn. Eins og var hvíslað í salnum áðan þegar ég gekk inn beinist umræðan að sjálfsögðu að þeim fjölnota kosningaloforðum sem Framsóknarflokkurinn hefur endurunnið hérna kosningar eftir kosningar án þess að gera miklar tilraunir til að standa við þau milli kosninga. Eins kom það fram í fjölmiðlum í dag í máli hæstv. forsætisráðherra að kannski verður staðið við loforðið um að hækka barnabætur árið 2007. Kannski. Kannski á 12 ára afmælisdaginn, þegar einmitt 12 ár verða liðin frá því að Framsóknarflokkurinn lofaði þessu fyrst. Þá verður kannski pöntuð kaka og blásið á 12 kerti og því fagnað sérstaklega 12 árum eftir að loforðið kom fram og þá væntanlega þrennum eða fernum kosningum síðar, verði það yfirleitt efnt.
Það er svo sem ágætt að Framsóknarflokkurinn sé ekki alveg búinn að gleyma þessu kosningaloforði. Þetta var eitt af meginloforðum flokksins í a.m.k. tvennum kosningum, ef ekki þrennum, að hækka barnabæturnar. Einhvern tímann hét þetta barnakort og ég veit ekki hvað og hvað. Þegar það kom svo upp úr dúrnum fyrir síðustu kosningar að barnakortaloforðið hafði verið svikið var það bara fært í nýjan búning og hét held ég aftur þá bara barnabætur. Lengi má nú flokkinn reyna og forgangsröðun Framsóknar.
Hæstv. forsætisráðherra hefur að mér skilst lýst því yfir í dag að það verði kannski efnt árið 2007. Okkur verður vonandi öllum boðið í 12 ára afmæli þess kosningaloforðs sem flokkurinn hefur svikið á hverju einasta ári síðan en mun — kannski — efna árið 2007.