148. löggjafarþing — 7. fundur,  21. des. 2017.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2018.

3. mál
[16:30]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Óli Björn Kárason) (S) (andsvar):

Herra forseti. Það er alveg ljóst að með þeim tillögum sem meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar stendur að þegar kemur að fjármagnstekjuskattinum er akkúrat verið að fara þá leið. Við tryggjum að þeir sem hafa hæstu fjármagnstekjurnar muni borga meira núna, en þeir sem eiga bara sinn venjulega, hefðbundna sparnað koma betur út en undir núverandi kerfi. (Gripið fram í.) Hv. þingmaður hlýtur að fagna því. Það er meira að segja ekki nógu langt gengið í því efni. Ég væri til í að ræða að hækka frítekjumarkið enn frekar.

Það var um þetta.

Varðandi ívilnanir á bílaleigur er það svo, og menn geta haft mismunandi sjónarmið í því, að við teljum skynsamlegt að gefa þessum fyrirtækjum afslátt sem byggja að hluta viðskiptamódel sitt á honum. Afslátturinn hefur verið ein forsenda þess að þau hafa endurnýjað bílaflota sinn töluvert hratt á seinasta ári, og hefur það meðal annars orðið til þess að keyptir hafa verið hagkvæmari, sparneytnari og umhverfisvænni bílar. En þessi afsláttur hverfur síðan í lok næsta árs. Það er bara spurningin um hvort við gerum það núna um næstu áramót eða höfum aðlögunina aðeins lengri en þá ekki jafn mikla ívilnun. Við ætlum að helminga hana núna og henni lýkur síðan í lok næsta árs. Það er nú allur galdurinn.

Ég hef hins vegar lagt til að huga eigi að því að taka upp vegtolla eða veggjöld sérstaklega á bílaleigubíla fyrir hvern sólarhring, og alla bílaleigubíla sem koma til Íslands til skemmri tíma. Ég held að við ættum að ræða að gera það með einhverjum skynsamlegum hætti.