143. löggjafarþing — 7. fundur,  10. okt. 2013.

rekstur Íbúðalánasjóðs.

[10:55]
Horfa

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Í fjárlagafrumvarpi næsta árs er áætlað að veita 4,5 milljarða króna til Íbúðalánasjóðs vegna viðvarandi taprekstrar sjóðsins. Áætlað er að svipað framlag þurfi árlega á næstu árum. Sú upphæð bætist við 45 milljarða króna sem ríkissjóður hefur þegar lagt sjóðnum til. Fljótlega eftir að ný ríkisstjórn tók við lýstu bæði hæstv. fjármálaráðherra og hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra því yfir að endurskoða þyrfti skilmála á skuldabréfum sjóðsins. Í því sambandi hvatti hæstv. fjármálaráðherra skuldabréfaeigendur til að vera sveigjanlega og hæstv. félagsmálaráðherra hvatti til þess að byrðunum af taprekstri Íbúðalánasjóðs yrði deilt milli aðila.

Í ljósi þess að taprekstur Íbúðalánasjóðs var milljarðar og jafnvel milljarðatugir fyrir afkomu ríkissjóðs vil ég spyrja hæstv. fjármálaráðherra um stöðu þessa máls. Hvað hefur ríkisstjórnin gert til að draga úr áhættu ríkissjóðs af rekstri Íbúðalánasjóðs? Vill hæstv. ráðherra enn leita leiða til að endursemja um skilmála skuldabréfa Íbúðalánasjóðs eða vill hæstv. ráðherra leita annarra leiða til að draga úr fjárhagslegri áhættu og framlögum úr ríkissjóði vegna Íbúðalánasjóðs?