150. löggjafarþing — 7. fundur,  19. sept. 2019.

veggjöld og borgarlína.

[10:32]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Nú er búið að kynna fyrir a.m.k. einhverjum sveitarstjórnarmönnum einhver svakaleg áform um framkvæmdir í samgöngumálum og nýja gjaldtöku, nýja skattlagningu til að standa straum af þeim áformum. Ekki hefur gefist svigrúm til að kynna þetta fyrir þingmönnum en það virðist sem áformin eigi að fela í sér nýja gjaldtöku fyrir það eitt að fara um vegi borgarinnar þar sem fólk keyrir um göturnar sem það er þegar búið að borga með sköttunum sínum á bílunum sem það hefur þegar borgað og greitt hin ýmsu gjöld af til ríkisins og notar eldsneytið sem það hefur keypt með hinum fjölbreytilegustu gjöldum sem eru lögð á eldsneyti til að standa straum af framkvæmdum í samgöngumálum.

Ég ætla ekki að biðja hæstv. ráðherra að útlista þau áform hér. Vonandi verða þau þó kynnt sem fyrst fyrir þingmönnum. Ég vil einfaldlega spyrja hæstv. fjármálaráðherra: Getur hæstv. ráðherra hugsað sér að fólk verði látið borga gjöld, viðbótargjöld, fyrir það að aka um vegi höfuðborgarsvæðisins? Og í öðru lagi: Getur hæstv. ráðherra hugsað sér að slík gjaldtaka renni til fyrirbæris sem kallað er borgarlína og enginn virðist hafa hugmynd um hvað muni kosta á endanum eða hvers eðlis verði? Það eina sem ljóst er er að hún mun þrengja enn meira að umferðinni á höfuðborgarsvæðinu.

Þetta eru tvær spurningar, herra forseti. Getur hæstv. fjármálaráðherra hugsað sér að slíkt gjald verði lagt á, gjald fyrir að aka um vegi höfuðborgarsvæðisins, og að það renni í þetta borgarlínufyrirbæri?