152. löggjafarþing — 7. fundur,  8. des. 2021.

störf þingsins.

[15:22]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Núna er ekki rétti tíminn fyrir ríkið til að hækka álögur og gjöld á fyrirtæki í landinu sem sum hver róa lífróður. Það gerir þessi ríkisstjórn hins vegar með hækkun áfengisgjalds. Hækkunin bitnar í ofanálag harðast á þeim atvinnugreinum sem mest finna fyrir sóttvarnaaðgerðum stjórnvalda. Hérna vantar einfaldlega allt samhengi milli veruleikans og aðgerða stjórnvalda. Og að hægri flokkur skuli við þessar aðstæður hækka áfengisgjald er með nokkrum ólíkindum. Fyrirtæki í veitingageiranum eru, að mér skilst, um 1.000 talsins. Staðirnir standa frammi fyrir því að þurfa að loka fyrr. Almenningur fær skilaboð um að fara varlega, sem skilar fleiri afbókunum en áður á veitingastöðum og það er auðvitað skiljanlegt. Desembervertíðin er ekki hin sama og við venjulegar aðstæður.

Hæstv. heilbrigðisráðherra sagði, þegar hann framlengdi sóttvarnaaðgerðir um tvær vikur til viðbótar, að hann vildi með því tryggja vörnina í bili. Næst væri svo að vinna boltann og keyra af stað. En það er erfitt fyrir fyrirtæki að vinna boltann og keyra af stað þegar fyrirtæki eru að renna inn í þriðja ár sóttvarnaaðgerða og sakna úrræða frá stjórnvöldum. Þess í stað fá þau í jólaglaðning skattahækkun stjórnvalda. Þau búa líka við lítinn fyrirsjáanleika, minnisblöð eru kynnt á nokkurra vikna fresti og framtíðarhorfurnar, glugginn, eru aldrei meiri en sem því nemur. Að ganga um miðborg Reykjavíkur í dag segir sögu af því hver staðan er. Stólar standa uppi á borðum. Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði lýsa yfir áhyggjum og starfsemi þessara fyrirtækja hefur verið takmörkuð einna mest allt þetta tímabil. Stjórnvöld verða að vera læs á aðstæður og bregðast við í samræmi við þær. En í hverju felast viðbrögð ríkisstjórnarinnar gagnvart þessum fyrirtækjum? Þau felast í 3 milljarða kr. hækkun á áfengisgjaldi.