157. löggjafarþing — 72. fundur,  18. feb. 2026.

stöðugleikaregla.

291. mál
[15:49]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir að vekja máls á þessu. Þegar þessi stöðugleikaregla var kynnt í upphafi þá spurði sá sem hér stendur ítrekað að því hvort þessi regla myndi ekki sjálfkrafa ýta undir skattahækkanir, því að ef ekki tækist að koma böndum á útgjöldin þá væri aðeins ein leið eftir til að vera innan þessarar 2% raunútgjaldaviðmiðunar, sem er að hækka skatta. Á daginn kom auðvitað, þrátt fyrir að því hafi verið neitað, að það eru nákvæmlega þau viðbrögð sem farið var í, þ.e. að hækka skatta, til að mynda vörugjöld, til að nefna einhver dæmi, en þau eru mun fleiri.

Vegna orða sem féllu hér áðan um hækkað lánshæfismat þá hefði það alveg eins getað verið rökstutt af Fitch með því að benda á útgjaldareglu, enda er þessi stöðugleikaregla í raun og veru endurskírð útgjaldaregla og stendur veik sem slík.