stöðugleikaregla.
Forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir að koma með þetta mál hér inn í þingið. Við upplifðum stöðugleikaregluna í fyrsta skipti í fjárlaganefnd þetta árið og það endaði, held ég — böfferinn var 8 milljónir, ef ég man rétt, í lokin. Það er bara stillt af eftir þessu og með skattahækkunum. Og hugsið ykkur dæmið með bílamálin, vörugjöldin á bílana. Málið kemur fram í október. Það er búið að leggja fram fjárlagafrumvarp, mánuði síðar koma fjárlögin og efnahags- og viðskiptanefnd er falið að fara með málið. Þetta er enginn agi. Við erum að tala um það sem vantar í fjármálin hér og hugmyndin um lög um opinber fjármál er að efla aga og formfestu í fjármálum ríkisins, hvernig farið er með ríkisfjármálin. Og eins og við upplifðum þetta í haust þá er stöðugleikareglan, þessi útgjaldaregla, ekki til þess fallin.