157. löggjafarþing — 72. fundur,  18. feb. 2026.

hæfniviðmið.

438. mál
[16:12]
Horfa

Sandra Sigurðardóttir (V):

Forseti. Í kynningarefni frá MMS kemur fram að inntak prófanna, eins og hefur komið fram hér áðan, er endurskoðuð viðmið aðalnámskrár. Vægi hvers flokks er síðan mismunandi eftir árgöngum og prófin reyna á kunnáttubeitingu, rökhugsun og greiningu sem er einmitt sérstakur áhersluþáttur í PISA. Í matsferlinum felst krafa um réttlæti sem á að tryggja að allir nemendur fái raunhæf tækifæri til að sýna styrkleika sína. Ég hafna því að skóli eigi að snúast um utanbókarlærdóm og stöðlun. Nám afmarkast ekki við færni eða þekkingarsöfnun á einstökum mælanlegum viðmiðum. Nám er samfellt ferli sem ótal ólíkir þættir spila inn í. Tökum afstöðu með menntun sem metur hvernig nemendur beita þekkingu, hvernig þeir beita rökhugsun, skapa og taka ábyrgð. Það er í samræmi við alþjóðleg viðmið. Spurningin á ekki að vera hvort við metum heldur hvernig og þá í þágu hvers. Þröngt árangursmat sem einblínir á tölur og samanburð getur vissulega mælt einstaka þætti náms en miðað við það sem ég hef séð af kynningarefni um matsferilinn sýnist mér að þar sé um heildstætt og vandað matstæki að ræða og skólafólk hlýtur að fagna því.