139. löggjafarþing — 72. fundur,  15. feb. 2011.

samningar um ábyrgð á endurgreiðslu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda til breska og hollenska ríkisins.

388. mál
[16:41]
Horfa

Margrét Tryggvadóttir (Hr) (andsvar):

Mig langar að halda áfram með spurningu mína, því að ég veit að á fundi fjárlaganefndar í gærmorgun var dreift drögum að ritinu Efnahagsmál, nr. 4, sem ber titilinn „Hvað skuldar þjóðin?“ Þetta eru drög, þetta er ekki fullbúið, og nokkrum klukkutímum síðar var málið tekið út. Mér finnst skipta miklu máli hver heildarskuldastaða Íslands er. Ég veit að það hefur ekki farið fram efnisleg umræða í fjárlaganefnd um þetta og fór ekki fram áður en málið var tekið út.

Nú vil ég spyrja formann fjárlaganefndar hvort hún hafi kynnt sér drögin að þessari skýrslu eða riti og ítreka spurningu mína frá því áðan: Er réttlætanlegt að láta íslenska skattgreiðendur greiða þetta?

Ég vil taka fram að mér finnst þessi svarta sviðsmynd ekki svo fjarri lagi, það þarf svo lítið út af að bregða.