Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 74. fundur,  7. mars 2023.

Störf þingsins.

[13:33]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf):

Virðulegi forseti. Við blasa stórkostlegar og vaxandi álögur á millilandaflugfélög og farþega þeirra samkvæmt ákvörðun Evrópusambandsins um sérstakrar ETS-álögur, sem leggjast þyngst á þau flugfélög og flugfarþega sem lengst þurfa að fljúga til að komast til og frá heimalandi sínu. Ólíkt flestum Evrópubúum eigum við þess ekki nokkurn kost að bruna á milli ólíkra staða eða þjóðlanda á vistvænum rafmagnsbílum og aldrei í samanlagðri sögu íslenskrar utanríkisþjónustu hafa verið haldnir jafn margir fundir með ráðamönnum í Brussel til að þessar álögur verði mildaðar með hliðsjón af óhjákvæmilegu flugi til og frá Íslandi, sem af augljósum ástæðum er tvisvar til þrisvar sinnum lengra en almennt gildir um flugleiðir milli Evrópulanda. Samgönguráðherra Íslands mun hafa átt á annan tug funda með kollegum sínum ytra og forsætisráðherra okkar beitt sér alveg sérstaklega, allt fyrir gýg. Svarið er stutt og laggott: Nei.

Hér getur að líta enn eitt dæmið um hvernig blinda auga Brusselverja er snúið að augljósri sérstöðu Íslands, eins og skattar og álögur á Íslendinga séu ekki feykinógar fyrir. Að óbreyttu munu ETS-gjöldin nema um 50 evrum á hvert flug frá Íslandi til Evrópu og mun meira sé til að mynda flogið til Tenerife eða lengra. 15.000 kr. íslenskar ofan á hvern farmiða og fram og til baka — takk fyrir. Margföldum það með öllum þeim sætum sem seld eru af Icelandair, Play og fjölmörgum flugfélögum öðrum sem hingað fljúga. Hér er um æðimarga milljarða að ræða og ljóst að íslenskri ferðaþjónustu er stefnt í uppnám. Millilendingar milljóna farþega munu að óbreyttu að færast til Bretlands sem ekki lýtur lengur fyrirmælum frá Brussel. Útflutningi á ferskum fiski sem fluttur er með flugi er stefnt í uppnám og áður óþekktir átthagafjötrar verða kynntir til leiks hinum efnaminnstu í samfélaginu með álögum sem nema næstum jafn háum upphæðum og ódýrustu flugfarseðlarnir hafa verið boðnir á til þessa. Til að koma til móts við okkur býðst okkur að sækja um í (Forseti hringir.) evrópska sjóði til að finna í snarheitum upp langdræga flugvélamótora knúna vetni eða rafmagni. Gangi íslenskum flugvélaverkfræðingum vel í þeirri áskorun.