málefni innflytjenda og vinnumarkaðsaðgerðir.
Hæstv. forseti. Já, ég tek bara undir með hv. þingmanni að þetta er mjög mikilvægt og líkt og ég sagði í fyrra andsvari er mikilvægt að við séum að lögfesta þjónustustöðvarnar úti um allt land hjá Vinnumálastofnun. En ef við tökum sérstaklega Vinnumálastofnun á Ísafirði þá er það auðvitað breyting þegar stofnun hefur höfuðstöðvar sínar úti á landi og það er vissulega ekki lengur, verði þessi breyting að lögum. Það má kannski segja að það í sjálfu sér sé neikvætt en á móti kemur, tel ég alla vega, að það sé mikilvægara að við getum eflt þá starfsstöð sem þarna er fyrir hendi og gefið henni ný verkefni. Það sem hefur verið rætt í því samhengi er að koma á miðstöð rafrænnar þjónustu fyrir pólska innflytjendur á Íslandi og er það verkefni sem Vinnumálastofnun mun þróa áfram, verði frumvarp þetta að lögum. Það er eitthvað sem gæti hlaðið utan á sig og búið til eitthvað sem yrði enn þá stærra sem starfsstöð á Ísafirði. Ég bind alla vega vonir við að svo geti orðið og jafnvel gæti slík miðstöð tekið til fleiri tungumála heldur en pólsku í framtíðinni og til fleiri stofnana heldur en akkúrat Vinnumálastofnunar við það að gera rafræna þjónustu fyrir innflytjendur betri en hún er í dag. Reynsla Vinnumálastofnunar er sú að sú rafræna þjónusta sem er ekki á íslensku skili sér ekki nægilega til notendanna þannig að það þarf eitthvert átak í að nýta kosti rafrænnar þjónustu betur heldur en er í dag.